Aftur á beinu brautina

germs.jpgEða eins beina og hún getur orðið. Ég gat það ekki fyrr en í dag af því að mamma var að baka kleinur. Ég get ekki sagt nei við mömmu!

Ef við ýmindum okkur að meltingarfærin séu uppfull af óværu og að það sé helsta orsök allra minna vandræða þá er ég næsta viss að þær líti út eins og á myndinni eftir allt gotteríið.

Meltingarsérfræðingur vildi meina að ég þjáðist af iðraólgu en næringarráðgjafi sagði að það væri bara greining sem læknar klíndu á þegar þeir vissu ekki hvað væri að og þeir hefðu ekki tíma til að gramsa eftir orsök. 

Heilsugúrúar vilja meina að þetta sé allt skemmdir á meltingarvegi og ofvöxtur baktería sem spúa eitri út í líkamann sem valdi þessum einkennum í taugakerfinu. 

Ég spyr; ef ég fer ekki nákvæmlega eftir X matarræði, mun ég þá ekki lagast? Ég hef t.d. ekki kost á lífrænt ræktuðum matvælum, reglulegum ferðum í heilsuhúsið eða dýrum þeytingum. 

Ég tók út sætar kartöflur vegna þess að í annarri hvorri leiðandi skruddunni var mælt með að þær yrðu teknar út. Ég ákvað samt nú að henda þeim inn aftur eingöngu vegna þess að þær eru assgoti góðar.

En ef svo er að hin eina rétta leið að skjótum árangri (þ.e.a.s. á 6 mánuðum) sé að fylgja formföstu matarræði X þá hugsa ég að mig langi frekar að skjóta á ár. 

Mig langar að svindla og borða kolvetni af og til, vonandi eftir eitt ár verð ég hætt að drulla. 

Bæjæbæbæbæbæ

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Pétur

Skemmtileg færsla, núna dauðlangar mig að lesa þessa bók sem er um meltingaveginn og geðheilsuna. Tengist þetta tvennt?

Jóhann Pétur, 15.5.2012 kl. 22:17

2 Smámynd: Klisja Bullari

Góð spurning, er það nokkuð ólíklegt? Við finnum oft fyrir allskonar geðbrigðum í maganum, af hverju getur það ekki verið á hinn veginn - þ.e. að maginn valdi geðbrigðum :)

Klisja Bullari, 21.5.2012 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband