Ég fór í fýlu

0511-1010-1216-4627_black_and_white_pouting_cartoon_girl_with_her_arms_cossed_clipart_image.jpgÉg fór í fýlu í gærkvöldi, alveg hrikalega fýlu. Vinkona mín var í heimsókn hjá mér og settist við tölvuna og var á facebook. Til hvers að vera í heimsókn? Hún var að spjalla við aðra og þuldi upp skemmtilegar samræður við hina sem hún var að rabba við. 

Ég heyrði bjartsýnisröddina í höfði mínu segja "kommon, þú verður bara hress og skemmtileg og hlærð með henni yfir facebook, svo finnið þið ykkur eitthvað skemmtilegt að gera". 

En mig eiginlega langaði miklu frekar að vera í fýlu. Hún sagði líka að ég væri með ljóta handleggi, þarna hafði ég tvær góðar ástæður til að vera í fýlu. 

Stundum er bara gott að leyfa sér að vera í fýlu, en bara stundum. 

Bæjæbæbæbæbæ


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband